Parmesan og rósmarín kjúklingabringur með tómat-beikonsósu og gnocchi.
Uppskriftin er fyrir 4
Kjúklingabringur
4 stk kjúklingabringur
1 msk fennelfræ
2 msk fínt skorið ferskt rósmarín
1 stk sítróna (börkurinn fínt rifinn)
Sjávarsalt
Svartur pipar úr kvörn
Ólífuolía
Parmesanostur 80 gr
Setjið kjúklingabringurnar á bretti og berjið þær með kjöthamri þar til þær eru orðnar ca 1,5 cm þykkar allan hringinn. Brjótið fennelfræin í morteli og blandið þeim saman við rósmarínið og sítrónubörkinn. Dreifið blöndunni jafnt undir og yfir kjúklingabringurnar og kryddið þær líka með salti og pipar allan hringinn.
Hitið pönnu með ólífuolíu og brúnið bringunar báðum megin í ca 2,5 min á hvorri hlið. Setjið bringurnar í eldfast mót með gnocchi og dreifið tómatsósunni yfir gnocchiið og bringurnar. Setjið parmesanostinn yfir allt saman í lokinn og bakið við 180°c í 15 min eða þar til að bringunar hafa náð 73 gráðum í kjarnhita.
Tómat beikonsósa
1 kg tómatar úr dós hakkaðir
1 stk rauðlaukur
3 stk hvítlauksgeirar
1 bréf beikon
2 msk kjúklingakraftur
1 msk maple síróp
3 msk balsamico
Ólífuolía
Sjávarsalt
Svartur pipar úr kvörn
Skerið rauðlaukinn og hvítlaukinn gróft niður. Hitið pott með ólífuolíu og byrjið að steikja laukinn og hvítlaukinn. Skerið beikonið gróft niður og bætið út í potinn og steikið saman í ca 7 min eða þar til laukurinn er orðinn mjúkur.
Bætið tómötunum út í pottinn ásamt kjúklingakraftinum, maple sírópinu og balsamico edikinu. Sjóðið við væga suðu í 30 min og smakkið til með salti og pipar í lokin.
Gnocchi
3 stk bakaðar kartöflur (eða 400 gr af bökuðum kartöflum)
1 egg
400 gr hveiti
1 tsk fínt salt
Ólífuolía
50 gr smjör
Sjávarsalt
Svartur pipar úr kvörn
Bakið kartöflunar við 190°c í 80 min. Skerið kartöflurnar í helming og skafið innan úr þeim. Stappið kartöflunar með gaffli og setjið í skál með eggi, salti og hveiti. Hnoðið allt saman í höndunum þar til að deigið er orðið fallegt.
Rúllið deiginu út í ca 1 cm þykkar rúllur og skerið það í ca 3 cm langar lengjur. Setjið gnocchið í sjóðandi vatn og sjóðið í 7 min. Takið Gnocchið upp úr vatninu og setjið í sigti.