Brunch pizza með pestó eggjum pepperoni pylsum og kotasælusalati

 

Uppskriftin er fyrir 4

 

Pestó 

  • 120 gr ristaðar kasjúhnetur 

  • 1 hvítlauksrif 

  • 100 gr parmesan 

  • 40 gr basil 

  • 40 gr spínat 

  • 200 ml ólífuolía

  • Fínt salt 

Setjið allt saman í matvinnsluvél og maukið saman, smakkið til með saltinu. 

Kotasælusalat 

  • 200 gr kotasæla 

  • ½ stk rauð paprika ( smátt skorin)

  • 2 msk fínt skorinn graslaukur 

  • ½  stk sítróna börkurinn og safinn  

Setjið allt saman í skál nema sítrónuna, rífið börkinn af sítrónunni og kreistið safann úr henni yfir. Blandið öllu saman.

Pizzan 

  • 1 pakki tilbúið pizza deig 

  • 150 gr Stjörnugrís pepperoni pylsur 

  • 6 egg 

  • 1 stk vorlaukur (fínt skorinn )

  • 150 gr skornir sveppir 

  • Pestó 

  • Pizza ostur 1 pakki 

  • Sjávarsalt 

  • Svartur pipar úr kvörn 

Skerið pylsurnar niður og steikið á pönnu með sveppunum og kryddið með saltinu og piparnum. Fletjið pizza deigið út og penslið það með pestóinu, dreifið ostinum jafnt yfir allt pestóið og dreyfið svo pylsunum, sveppunum og vorlauknum jafnt yfir ostinn. Brjótið eggin og setjið á pizzabotninn, bakið pizzuna í 200 gráðu, heitum ofni í 15 min.

Berið fram með kotasælusalatinu og smá auka pestói.  

Previous
Previous

Aspas með pocheruðu eggi, hráskinku, ostinum feykir og beikonvinagrette