Salat með grilluðum kartöflum, reyktri bleikju, grilluðum aspas og dill-kapers dressingu
Uppskriftin er fyrir 4
Grillaðar kartöflur
2 stk bökunarkartöflur
ólífuolía
sjávarsalt
svartur pipar úr kvörn
Skerið kartöflurnar í þunnar sneiðar og veltið þeim upp úr ólífuolíu og kryddið vel með salti og pipar. Setjið á heitt grillið og grillið í 5 mín á hvorri hlið en snúið kartöflunum á grillinu í 90 gráður eftir 2 mín. Takið kartöflunar af grillinu og látið kólna
Kapers dressing
100 ml ólífuolía
2 msk dijonsinnep
1 msk hunang
2 msk fínt skorinn rauðlaukur
2 msk kapers
½ bréf gróft skorið dill
Sjávarsalt
Svartur pipar úr kvörn
Setjið ólífuolíuna, sinnepið og hunangið saman í skál og pískið saman í ca. 1 mín. Bætið restinni af hráefninu út í og smakkið til með saltinu og piparnum.
Meðlæti fyrir salat
2 stk súrdeigbrauðsneiðar
ólífuolía
1 stk hvítlauksgeiri
½ sítróna
1 flak reykt bleikja
2 stk soðinn egg
8 stk ferskur aspas
1 poki salat
Sjávarsalt
Svartur pipar
Penslið brauðið upp úr ólífuolíu og nuddið það vel með hvítlauk og sítrónu. Setjið brauðið á heitt grillið og grillið það þar til það er orðið stökkt. Takið af grillinu og látið kólna og skerið í teninga. Roðflettið bleikjuna og skerið hana niður í fallega strimla. Skerið eggin smátt niður. Veltið aspasnum upp úr ólífuolíu, kryddið hann til með salti og pipar og grillið í 2-3 mín á hvorri hlið. Raðið salatinu saman með kartöflunum og dreifið kapers dressingunni yfir