Skinkusalat
Uppskriftin er fyrir 4
250 gr majones
½ stk rauðlaukur fínt skorinn
1 pakki skinka (220 gr) fínt skorin
½ dós niðursoðin maís
1 msk paprikuduft
3 stk harðsoðin egg skorin í smáa bita í eggjaskera
1 stk grænt epli
1 msk chili sambal
1 msk sítrónusafi
fínt salt
Sigtið vökvann frá maísnum. Skolið eplið og kjarnhreinsið, skerið eplið í litla bita og rauðlaukinn smátt niður. Hrærið svo allt saman og smakkið til með salti