Hangikjötssalat
Uppskriftin er fyrir 4
200 gr Hangikjöt skorið niður í litla bita
1 dós grænar baunir og gulrætur
3 stk harðsoðin egg
2 dósir majones (500 gr)
Sigtið vökvann frá baununum og gulrótunum. Skerið eggin í smáa bita með eggjaskera og hrærið svo allt saman.